06 September 2008

Sofið út!!!!!

Ég var sofnuð snemma í gærkvöld. Var gjörsamlega búin eftir vinnusamann dag. Komin undir sæng fyrir hálf tíu og hlakkaði til að sofa út :) Vaknaði klukkan FIMM í morgun og get bara alls ekki sofnað aftur....aarrrggg.....klukkan er nú að verða sjö!!!!

Klukkan í tölvunni/blogginu er vitlaus hjá mér, þarf að láta laga það.

Það er þoka og smá vindur úti. Haustlegt á að líta hér út um gluggann sem ég sit. Laufin farin að falla og litirnir að breytast.

Þarf að fara að drífa mig í bílskúrinn að sortera dót.....henda/geyma/gefa!!!!

Nenni samt ekki svona snemma.....kannski í dag!!!

Það er samt einhver leti-söknuður-þreyta-deðurð í mér núna.....en sennilega og vonandi bara af því að ég vaknaði snemma!!!!

Nokkrar myndir frá páskum 2008

2 comments:

Anonymous said...

Búin að laga klukkuna - þú varst sem sagt að blogga klukkan korter í sjö í morgun - jeremías! :)

Anonymous said...

Þetta eru önfirsku gengin að vakna svona snemma, hér sit ég og búin að vera á fótum síðan 8:00. meðan allir hinir hrjóta til hádegis, það eru bolvísku genin, vildi ég væri komin í kaffi og kleinur til þín. Gangi þér vel í bílskúrnum. Mætum einhverntíman á Æ4Æ kveðja
Halla Signý