09 September 2008

Berjamó :)

Hún Guðný er hrein snilld :)
Hún stakk upp á því í kommenti að fara í berjamó í dag eftir vinnu og það gerðum við ásamt þeim Skírni og Bergljótu Ástu :) Við fórum hér upp á Nafirnar og þar var allt krökkt af berjum!!! Við tíndum slatta í box og þá kom rigningar úði, sem gerði þetta bara enn skemmtilegra....um stund!!! Bergljót Ásta og Skírnir fóru í fjallgöngu á meðan og höfðu gaman af :) Þetta var aldeilis góð tilbreyting :) Takk Guðný :)

Svo er nú afmælisbarn dagsins en það er hann Björn Ari sem er 11 ára í dag :) Hann er systursonur Péturs :) Sonur Þóru :)
Til hamingju með daginn Björn Ari :)

PS: Inga Rún, þú ert æði :)

2 comments:

ingarun said...

en gaman. nu langar mig i bláber... og kleinur auðvitað:)

Anonymous said...

Takk sömuleiðis, þetta var ekki síður gaman fyrir okkur, frétti að Skírnir hefði farið heim áðan í lögreglufylgd en helv... fíflið ég gleymdi auðvitað að láta vita !!