07 September 2008

Afmæli og afmæli :)

Hann Helgi minn er eitthvað að reyna að tjá sig í kommenti að hann sé spældur að ég hafi ekki bloggað þegar hann átti afmæli!!!
Elsku elsku Helgi minn þá var bloggið bilað...mannstu???

En hann rauðhausinn minn átti afmæli 30. ágúst :) Þá varð drengurinn minn 22 ára!!! Helgi er einn fallegasti piltur sem ég þekki, bæði að utan sem innan :) Hann er dugnaðar forkur á sjó (segir Rúnar skipper) en húðlatur heima(segi ég)!!!! Hann er í skólanum fram að áramótum, í vélstjórninni :)



Helgi og Sif voru miklir vinir og því varð það honum mjög erfitt þegar hún dó. Þegar hann var að klæða sig áður en hann fór eitthvað, spurði hann alltaf Sif um álit.

Ég man eitt skiptið þegar þau voru lítil úti að leika sér í snjónum og Sif festist í skafli og fór að gráta og Helgi gat ekki hjálpað henni, þannig að hann fór bara líka að gráta....hágráta sko :)

Helgi minn er eins og Sif, alltaf mjög stutt í brosið hjá honum:)

Helgi minn til hamingju (hér á blogginu sko) með afmælið um daginn:) Við elskum þig afskaplega mikið og hlökkum til að heyra í þér, sem fyrst :)

Í dag hefði Kjartan frændi frá Akureyri orðið 90 ára.
Í dag á hún Dúnna afmæli :) Til hamingju Dúnna og bestu kveðjur til þín :)
Í dag á hann Palli Önna líka afmæli :) Til hamingju Palli og bestu kveðjur til þín líka :)

Eigið góðan sunnudag :)

9 comments:

Gógó said...

Til lukku með afmælið um daginn Helgi:)

Anonymous said...

Ha??? Hvaða Gógó er að kommenta hér á undan??? En takk elsku Inga Rún mín að setja myndirnar með blogginu :) Þú ert hreint yndisleg :)

Anonymous said...

Langt síðan ég hef kíkt á þig Gógó mín, gott að heyra að ykkur líður vel í Skagafirði. Bestu kveðjur á bæin. Gróa á Ísafirði

Anonymous said...

Alltaf flottur!!!!

Anonymous said...

æ þetta var ég hérna efst að kommenta, var ennþá logguð inn á gmailið þitt Gógó. en þetta er alla vega frá mér Ingu Rún:)

Harpa Jónsdóttir said...

Mikið eru þetta skemmtilegar myndir! Og til hamingju með hann auðvitað!

Anonymous said...

AMEN! Heiðursblogg ;)

Anonymous said...

Til hamingju með drenginn frá frændfólinu í Ástralíu!

Anonymous said...

Wow ! Amazing blog to follow I would suggest to follow my all friends and family to follow his blog . Vivacious Blog - Full life and energy. Keep Posting, Off the Shoulder Wedding Dresses. Shoes Louboutin Shoes Christian Louboutin Boots A line Princess Wedding Dresses