12 September 2008

Júlla Jóns á afmæli :)

Hún vinkona mín Júlla Jóns á afmæli í dag :) Öðru nafni Stella (hans Guðna Guðna)
Hún er nefnilega áttræð í dag :)
Þeir sem vilja senda henni kveðju hér geta það og ég mun koma kveðjunni til skila :)
Frúin er að heiman :)

Elsku Stella bestu afmæliskveðjur til þín frá okkur öllum hér í B-37 :)
Ég veit að Alda Sigga er búin að stjana við þig í allan dag og sjálfsagt allir hinir líka :)

Hlökkum til að sjá þig.....sem fyrst :)

2 comments:

Anonymous said...

Þú ert alttaf jafn frábær Gógó mín, jú endilega skilaðu hjartanlegum afmælisóskum frá okkur Gullu héðan frá Florida. Stella (og Guðni reyndar líka) er einstök kona. Mér finnst þó að skaparinn hafi sett henni fyrir allt of mikið af raunum í lífinu. Þrátt fyrir mikið mótlæti, hefur hún (og GAG) alltaf verið dugleg að taka þátt í samfélagsmálum með gleði og gefið mikið af sér og fyrir það ber að þakka. Ég bið góðan guð um að leiða hana og styrkja.

Anonymous said...

Takk fyrir komentin Gógó min vildi að fleirri væru svona duglegir að kvitta Helga er litið að hressast er að vonast til að þetta lagist en hun er samt alltaf jafn jákvæð bestu kveðjur til ykkar allra frá sverige