25 September 2008

Bönnum þetta og hitt.......

Það ætti að banna lausagöngu katta!!!
Ég er að verða vitlaus(ari) á þessum helvítis köttum sem spranga um garðinn hér í B-37
Þeir skíta og míga hér eins og þeim þóknast....og án þess að skammast sín fyrir það!!!

Ég fer út á pall í mestu rólegheitum, þá stökkva þeir úr einhverjum runnanum og verða næstum valdir af hjarta áfalli hjá frúnni!!!

Þeir voga sér að eltast við fuglana hér í trjánum og eru sko ekki í leik við þá, nei þær ætla aðeins að myrða þá....sér til ánægju.
Tek það fram að fuglarnir hafa mitt leyfi til að vera hér í trjánum :)

Já ef bönnuð væri lausaganga katta (eins og hunda) þá myndi skapast í leiðinni fleiri störf :)
T.d. hér á Króknum myndi það ábyggilega skapa 6-8 manns vinnu, þar sem hér eru allt of margir kettir sveimandi um......þessir með ólarnar sko!!!

BÖNNUM LAUSAGÖNGU KATTA......

ES: Nú verður ekkert bloggað næstu daga/vikur/mánuði

KERLINGIN ER KOMIN Í FRÍ FRÁ ÞESSU ÖLLU!!!!

Eigið góðan dag/viku/mánuði........

4 comments:

Anonymous said...

Vertu nú ekki að þessu rugli frú Gróa ekkert blogg í mánuð þá myndi ég senda geðdeild þarna norður!!!

Gangi þér og ykkur vel að flytja !!!

Anonymous said...

Ég er nú sammála mákonu þinni. Og ég er þrátt fyrir að vera mikil kattarkona algjörlega á móti lausagöngu katta. og sérstaklega ógeldum köttum. Það á að gelda ketti nema það sé verið að nota þá í ræktun og þeir kettir fara aldrei út. Gangi ykkur vel að flytja.
kveðja frá okkur í Svíþjóð

ingarun said...

Gógó þú varst að ruglast, það var ekki 1. apríl í gær!

fanneyf said...

Það er bannað að hætta að blogga Gógó.
Það á eftir að vera svo gaman hjá þér um helgina þegar Gulla, Eiki bleiki og Tobba mæta á svæðið að þú átt ekki eftir að standast það að segja okkur frá því :-)
Kossar og knús.