06 November 2008

Tónleikar og heimkoma :)

Vorum að koma af tónleikum Tónlistarskólans, þar sem yngri dóttirin var að spila á píanóið :) Það var sko aldeilis flott hjá henni sem og öllum hinum spilurunum :)
Alltaf jafn gaman að fara á svona tónleika :)

Þegar við komum heim var Georg minn Rúnar mættur á Ægisstíginn og ætlar að vera hjá okkur í nokkra daga :) Það var nú aldeilis bónus á þessum degi :)
Frábært að vera búin að fá hann til okkar :)



Margrét setti inn nýjar myndir á myndasíðuna:)
Þar má sjá m.a. systurnar í hörku slag hér á Ægisstígnum, skúffukökuát, dömuna setja á sig varalit og eitthvað fleira okkur til gamans :)

Lifið heil.

4 comments:

Anonymous said...

Pétur, þetta er til þín, Kalli segir að þetta sé bara smá skeina, ég vorkenni þér ógó mikið.

Gaman að Goggi sé mættur í bæinn,

knús

litla norn

Anonymous said...

Flottar myndir. Ótrúlegt hvað krakkarnir eru fljótir að stækka.
hafið það gott í kreppunni.
Puss og kram
Helga

Harpa Jónsdóttir said...

Skemmtilegar myndir!

Anonymous said...

viltu skila kærri kveðju til Gogga frá mér. Hann verður að láta mig vita ef hann millilendir aftur í Köben:)