Eins og mér finnst nú gaman að hafa jólaljós og jóla jóla heima hjá mér, þá veit ég ekkert leiðinlegra en að setja upp þessar helv....seríur í gluggana!!!!
Kom heim úr vinnunni kl fimm, setti jólagardínurnar í þvottavélina.
Þreif eldhúsgluggana að innan og utan, þar sem mikil sjávarselta er á þeim utanverðu!!!
Sauð ýsu á meðan PB hamaðist við að setja seríu fyrir annan gluggann!!!
Átum ýsuna með mikilli áfergju og Pétur minn gerði afganginn af henni tilbúinn fyrir plokkfisk á morgun :)
Gekk frá eftir matinn.
Straujaði jóla jóla gardínurnar.
Þrusaði upp seríunni fyrir hinn eldhúsgluggann og setti síðan upp gardínurnar :)
Þær koma þræl vel út í þessum gluggum :)
Pétur minn setti útiseríuna í samband.
Ég tók myndir (sem Margrétin mín mun vonandi setja inn senn)
Undirbjó pakka til vinar míns í pakkaleiknum. (púff)
Hringdi í hana Öllu mína. (Æði)
Fór í tölvuna og nú á leið í draumalandið.
ZZZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzz
25 November 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Takk fyrir kveðjuna til mín á blogginu mínu í gær. Ég vona líka að það komi allt vel út úr þessu. Veit ekki hvort ég fæ að vita neitt fyrr en í þarnæstu viku.
öfunda ykkur af ýsuni en plokkfiskin er mér nokkuð sama um.
puss og kram Helga
Jólaseríur já. Ég er mikið að spekúlera að setja seríuna sem er föst á húsinu í samband. Nenni samt varla að drösla út stól og klifra upp á hann...
Kraftur í kellu!!!!!
þú og bróðir þinn eru eins hann setti ein 20 ljósa upp fyrir mig í gær að því að ég komst ekki fyrir bumbu og hann blótaði mikið á meðan þetta er ótrúlegt!!!!
Post a Comment