01 December 2008

Önnur tilraun á bloggi :)

Jæja ég reyndi að blogga í hádeginu, en það gekk ekki :(
Ætla að reyna aftur :)

Við keyrðum suður sl. föstudag :)
Ég kíkti til Gunnhildar systur á laugardagsmorgun og síðan til Júllu, Vigdísar og Ingvars og þaðan til Þóru og Örvars enda búa þau öll í Hafnarfirðinum :)

Haldið var upp á sjötugs afmæli hennar tengdamömmu á laugardagskvöldinu, en hún á afmæli 2. desember :) Heim til hennar komu um fimmtíu manns og var ótrúlega gaman :)

Vonandi koma myndir fljótlega frá afmælinu og allri ferðinni okkar suður :)

Keyrðum heim seinnipartinn í gær og gekk það líka vel :)

Frúin fór svo í vinnu í morgun og var þar til kl fimm eins og venjulega :)

Eigið gott kvöld :)

3 comments:

Anonymous said...

Gott að helgin skyldi takast vel og til hamingju með' tengda mömmu þin kveðja fra sverige

Anonymous said...

Gaman að ferðin gekk vel.
Mamma átti líka afmæli 2 des. Hún var fædd 35.
kveðja Helga

Anonymous said...

Það var gaman að hitta ykkur um helgina. Eigið góðan dag alle sammen.