14 December 2008

Lasarusar.......

Jæja þau nýgiftu eru að fljúga til Dk í dag og þar ætla þau að búa.
Góða ferð og gangi ykkur allt í haginn elsku Júlla og Þórir.

Frúin á Ægisstígnum aftur orðin stífluð af helv....kvefinu og vesen:(

BÁPan enn að æla og vaknaði ég um kl hálf þrjú í nótt þar sem hún var búin að æla allt rúmið út og á gólfið blessunin (ég er með mottu við hliðina á rúminu!!!) Þannig að það var nóg að gera hjá mömmunni að hugga og þrífa stelpu angan og taka utan af rúminu og koma öllu að sjálfsögðu í þvottavélina :) Frökenin er svo líka komin með hita.....aftur.

En hún fékk BINGO spil í skóinn í nótt svo við getum vonandi stytt okkur stundir í dag og spilað BINGO :)

Eigið bingo góðan dag í dag :)

3 comments:

Anonymous said...

Æ Æ ekki gott ástand þetta vona að ykkur mæðgum batni sem 1 Kveðja sverige

Anonymous said...

Það er alveg týpist með svona ælupestir og aðrar pestir á þessum árstíma. Frænka mín og co fá alltaf ælupestir um jólin. Ég sagði nú einu sinni við hana að það væri eldamenskan hjá henni um jólin. Hún vildi nú ekki viðurkenna það.
kv. Helga

Anonymous said...

hrækið slíminu úr ykkur og látið ykkur nú batna :-)

Víðir