04 December 2008

FÉSBÓKIN MÍN.....

Jæja já frúin í....jahhh eitthvað þarna á milli 99og 110 er komin með svona fésbók!!!!

Pétur minn (aðalkallinn sko) gerði svona fyrir sig í gær, þannig að það kom ekkert annað til greina en hann hjálpaði mér að stofna svona líka!!!!

Sem hann náttúrulega gerði blessaður.....en frúin varð svo pirruð, geðill, óþolinmóð og allt þar á milli, því hún skildi þetta ekki strax.....rauk bara inn í rúm og undir sæng eins og hver annar frekasti og leiðinlegasti krakkagrislingur!!!!

Verð að vefja eiginmanninn minn örmum tveim (ef ekki bara þrem) er hann kemur heim á eftir og verða þolinmóðari í kvöld þegar hann klárar að sýna mér þetta dæmi!!!!
En plís verið þið þolinmóð þangað til ég kann að "adda" ykkur inn og kann að svara ykkur :)
Maður er nú ekkert unglamb lengur að læra á svona tækni sko!!! Þið skiljið :)

Eigið góðan dag :)

3 comments:

Harpa Jónsdóttir said...

OMG við bara verðum að vera vinir þar líka ;-) Ég leita að þér strax!

Harpa Jónsdóttir said...

Ég fann hvorugt ykkar!

Anonymous said...

Sæl Gógó mín, þetta eigum við sameiginlegt ég haga mér stundum svona líka ef eiginmaðurinn er að reyna að sýna mér hvernig eigi að gera eitthvað í tölvunni. Sem betur fer hjálpar litli bróðir í Noregi mér með það mesta í tölvunni svo það er ekki oft að ég tek svona köst hérna heima... en ÉG SKIL ÞIG VEL! Þú hættir vonandi ekki með bloggið þó að þú farir yfir á fésbók (frábært orð)
Kær kveðja
Ásdís frænka