11 December 2008

Aldrei fór ég suður......

Þar fór það!!!
BÁPan kom heim úr skólanum í hádeginu með ælupestina!!!!
Þegar ég kom heim úr vinnunni klukkan fimm var hún komin með hita og niðurgang....og þá meina ég sko niðurgang!!!! Bara aðeins að lýsa þessu fyrir ykkur :)

Þannig að við mæðgur munum ekki fara suður á morgun eins og ráð var gert fyrir!!!
Aldrei að vita nema PB fari og kveðji þau Júllu Baddý og Þóri :)

Svona er þetta bara.......og Pollýanna mín bankaði í öxlina á mér og minnti mig á hvað við erum heppin að hún verði búin með þessa pest fyrir jól og áramót :)

Þetta var skítablogg dagsins!!!

2 comments:

Unknown said...

Einu sinni var ég með niðurgang.

Anonymous said...

Æj en ótrúlega leiðinlegt að heyra. Farið vel með ykkur og rétt hjá þér, heppnar að vera búnar með þetta fyrir jólin.
Það var gott að við náðum að hittast um daginn.
Hafið það gott mæðgur og allir af Hverfisgötunni biðja að heilsa.