Shrek, Angelina Jolie and Brad Pitt snæddu hádegismat saman.
Shrek sagði: Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en hvernig get ég verið viss?
Brad sagði: Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest.
Angelina samsinnti þessu. Hún sagði: Mér er sagt að ég sé dásamlegust allra kvenna, en stundum efast ég.
Þau ákváðu að besta leiðin til að fá staðfestingu á því hvort Shrek væri sterkastur, Brad sá kynþokkafyllsti og Angelina sú dásamlegasta, væri að spyrja hinn fræga talandi spegil: Spegill spegill herm þú mér....
Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur sínar.
Daginn eftir mætti Shrek með breitt bros á andlitinu.
Jæja, sagði hann. Það er satt. Spegillinn sagði mér að ég væri sá sterkasti í öllum heiminum.
Brad reigði sig og sagði: Og ég veit núna fyrir víst að ég er kynþokkafyllsti, núlifandi karlmaður á jörðinni.
En Angelina sem hafði setið álút, lyfti nú fallega sorgmædda andlitinu sínu og sagði: Hver í fjandanum er þessi Gógó ????
25 October 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
LOLOLOLOL Þessi var góður!!!!
Ég á eftir að fá hann lánaðan!!!!
ja þessi var ferlega goður nota hann sennilega lika kveðja sverige
Post a Comment