Það er eitthvað að þessu bloggi núna!!!
Er bara að tékka hvort þetta virkar!!!
Ókei þetta virkar :)
Verð náttúrulega láta vita hvað frúin er búin að vera dugleg í dag :)
En mín er sko búin að þrífa allt hátt og lágt :)
Er alltaf svo glöð þegar ég verð svona "húsmóðurleg"
Fór meira að segja út að moka snjó af tröppunum þvottahús megin og að framanverðu :)
Fór út með myndavélina og ætlaði að taka snjóa myndir.....en sá að það yrðu engar snjóamyndir núna!!! Var nefnilega búin að skoða snjóamyndirnar á blogginu hennar Ellu og hjá henni Steinunni.....já það er sko snjór fyrir vestan :)
BÁPunni var boðið að gista hjá Rebekku vinkonu sinni í nótt og fór hún héðan um klukkan tvö í dag, hún var svo spennt að hitta vinkonuna :)
PB: Pétur bitni og frúin í 99 verða því tvö í kotinu í kvöld.....uns Margrétin kemur úr vinnunni um klukkan ellefu :)
Frúin búin að kveikja á kertum og hugguleg heit: rómó :)
Heyrði í þeim utanlandshjónum áðan (Gullu og EFG)sem eru nú í Köben og eru danirnir bara góðir við þau :) Í fyrramálið klukkan átta er viðtal á Bylgjunni hjá Hemma Gunn við hann Eika bleika :) Á morgun er 26. okt : SNJÓFLÓÐADAGURINN Á FLATEYRI
Í dag var hann Kristján Halfdánarson jarðaður. Blessuð sé minning hans. Hann var virkilega góður maður hann Kiddi.
Frúin í 99 kveður.
25 October 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Góður brandar hjá þér um Shrek og vini. Það er svo nauðsinlegt að hafa sjálfsálitið í lagi. Elli biður að heilsa Pétir bitna.
Kveðja Helga
já það er sko bara allt komið á kaf hérna... en núna er loksins hætt að snjóa og Önundarfjörðurinn komin í sína rétt fögru mynd :) bjart og gott veður :)
Hafið það gott fyrir norðan :)
kv. Steinunn
Post a Comment