23 October 2008

Ekkert puttaprjón hér :)

Það er svo gaman þessa dagana að hlusta á hann Pétur minn :)

"þessi datt í sjóinn.....þessi dró hann upp....þessi...jahh já þessi var bitinn af!!!"

Svo syngur þessi elska:
" þumalfingur þumalfingur hvar ert þú...hér er ég hér er ég, góðan daginn daginn daginn....
vísifingur vísifingur hvar ert þú......buhu já hvar ert þú????

Nú og þar sem ég verð með bílinn á morgun og Pétri mínum vantar að komast til Akureyrar, þá er hann nú bara að hugsa um að fara á puttanum!!! Og syngur glaður "ég fer á puttanum, ég fer á puttanum"

Er þetta líf ekki yndælt :)

Inga Rún mín kærar þakkir fyrir að bæta í linkinn hjá mér :)
Litla norn ertekki glöð að Feykir er komin í link á þessari víð lesnu síðu??? :)

Frúin í 99 kveður fyrir nóttina :)

2 comments:

Anonymous said...

Nei þetta líf er ekki indælt með venjulegu i-i.. :/

Anonymous said...

Pétur er ekkert á leið i puttaland er það. Hafið það gott öllsömul Gógó min kveðja frá sverige