19 October 2008

Færsla tvö í dag :)

Lögreglustjóri Stefán brást fljótt við fingurbiti lögregluvarðstjóra Péturs.
Hann mætti nefnilega hér áðan með auka fingur áður en hann keyrði PB á spítalann!!
Reyndar voru þeir fingur í pakka...finger ginger kex :)
Gott að hafa húmorinn á réttum stað :)

Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi í gær leikritið Pétur Pan :)
Ég ætla í leikhús klukkan fimm í dag með Bergljótu Ástu og Rebekku vinkonu hennar :)
Foreldrafélag skólans greiddi niður miðana fyrir börn í yngstu bekkjum skólans og þurfa þau aðeins að borga kr. 500 :) Gott framtak hjá þeim :)

Þeir sem eru með fingurbit og makar þeirra fá frítt inn!!!

Hugsa að við BÁPan getum deilt saman sæti þar sem maður er nú komin niður fyrir eitthundraðkílóin!!! Maður þarf sko ekki eins mikið pláss núna....eða hvað!!!

Frúin í 99 kveður að sinni :)

1 comment:

Anonymous said...

Góða skemmtun í leikhúsinu!!!!

En ég var að spá þú varst 101 Reykjavík en hvað nú þú getur notað gömlu svæðisnúmerin hvað var fyrir norðan var það ekki 98 ná því