Jahh ekki eru spádómar Spákonunnar marktakanlegir, þar sem hún var búin að spá að Inga Rún og Bragi myndu eignast barnið í gær!!!!
Þá er það bara næsta ágiskun.....núna held ég að það verði þann 12. jan--16merkur--51cm og enn er ég viss um að það er stelpa :)
Annars er lífið bara yndislegt á Króknum þessa dagana :)
Ég er ekki lengur viss hvort Pollýanna leiði mig eða ég bara hana!!!
BÁPan glöð í skólanum :)
MAM byrjuð í Fjölbrautinni hér :)
Verra er það þó með puttann hans Péturs míns en hann fór með fingurinn í myndatöku í morgun.....og hangir nú myndin í stofunni.....nei djók :)
Nei en beinið er bara ekkert að gróa hjá honum!!!
Bara brot þvert yfir og grær ekkert :(
Það finnst mér nú mjög sorglegt.
Jæja en allt jóla dót og ljós komin ofan í kassa og bíða þeir nú bara í þvottahúsinu eftir að verða settir á sinn stað :)
Já jólin alveg búin á þessum bæ :)
Enda ætlar frúin að nota mestan tíma um helgina í að þrífa hér heima og áfram að þvo þvotta:)
Frúin er full orku þessa dagana og er það ekki slæmt :)
Eigið góða daga :)
07 January 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
gaman að vera svona glöð og kát. Ef þú mundir segja á sænsku að þú værir kåt og glad þá þýðir það allt annað.
hafðu það sem best með Pollýönnu. ég þarf að ná í skottið á henni.
biðjum að heilsa
kveðja Svíþjóð
Þessi "bitvargur" hefur þokkalega mikið á samviskunni.
Óþolandi!!!
Gvöð hvað ég er eitthvað seinn að fatta.
Ég er fyrst núna að uppgötva hver þessi Polýanna er.
Gleðilegt ár!
Post a Comment