Verð sko að segja ykkur það strax en við fjölskyldan fórum að skoða í kvöld, hús niður í bæ :) Okkur öllum leist mjög vel á það og nú erum við búin að fá það leigt og ekki bara í einhverja óvissu mánuði heldur pottþétt í EITT ÁR :) Jihúúúú ég er svo glöð ég er svo glöð :) Við flytjum líklegast um mánaðamótin :) Nú væri gott að fá lánaðar nokkrar vaskar hendur og skipulögð höfuð að láni!!!!
Get nú varla beðið eftir að vera búin að koma mér þar fyrir........en til að hafa um eitthvað annað að hugsa núna þá kemur hér kleinu uppskriftin, sem ég b.t.w. fékk í gamla daga frá Maju gömlu Gull :)
Þetta er sem sagt einföld uppskrift en ég VERÐ náttúrulega að gera tvöfalda :)
1kg. Hveiti (rúmlega)
4stk.Egg.
5dsl.Súrmjólk.
4tsk.Lyftiduft.
180gr. Smjörlíki. (bræði það)
250gr.Sykur.
3tsk.Hjartarsalt.
5tsk.Vanilludropar.
Nú svo er bara að hnoða þessu öllu saman og fletja síðan út og snúa í kleinur :)
Ég steiki þær alltaf upp úr olíu (korn olíu) Muna að hita olíuna vel og muna að hafa eldvarnar teppið nálægt :)
Farið nú að baka kleinur en í öllum bænum farið varlega :)
Látið mig svo vita hvernig gekk :)
04 September 2008
4. september 2008
Einhver er að kommenta að það sé ekkert gaman að kommenta á þessa síðu :) Ég skil það vel, ég ætlaði aldrei að geta kommentað á síðuna hjá þeim Cosmo stelpum.....en lærði það þó að lokum :)
Annað hvort skrifar maður bara nafnið sitt neðst í kommentinu eða klikkar á NAME og svo á PUBLISH......ekkert mál :)
Í dag er 4. september og þann dag fyrir fjórum árum var hún Sifin okkar jörðuð.
Í kvöld mun ég kveikja á kerti fyrir hana.
Ég veit þið gerið það líka, til minningar um þessa lífsglöðu og frábæru stelpu sem hún var.
Eigið góðan dag .

03 September 2008
Bloggið í dag.
Þórhanna gaman að vita að þú kíkir stundum inn á síðuna mína og enn skemmtilegra þegar þú kommentar :)
Helga mín ég fer að senda þér fljótlega kleinu uppskriftina :)
Guðný ég væri sko meira en til í að leigja íbúðina þína svo hún seldist......ef hún væri hér á Króknum en ekki á Ísafirði!!! (ég vona líka að við komumst niður í bæ)
Annars er svo sem lítið að frétta héðan úr B-37......ennþá!!! Núna er það vinna frá hálf níu til hálf fimm alla daga og svo húsverkin eftir það, nú svo bara henda sér undir sæng og lesa, þ.e.a.s. ef það er ekki kleinu bakstur!!!
Bergljót Ásta byrjar í Tónlistarskólanum á morgun og heldur áfram að læra á píanóið :)
Þetta var blogg dagsins :)
Hafið það gott kæru vinir.

02 September 2008
Ég flyt inn og húsið er selt........
Jæja mín tók sig nú bara til um kl hálf sjö í kvöld að steikja kleinur!!! Var að til kl tíu að ég held :)
Það er nefnilega þannig að þegar hjónin sem eru búin að kaupa B-37, komu að skoða húsið þá var ég ný búin að steikja kleinur og baka kanilsnúða!!! Þau sátu hér á annan tíma og drukku mjólk og borðuðu kleinur :) Enda sagði Biggi, nú fyrrverandi eigandi B-37 að þeim hafi litist svo vel á okkur leigjendurna....að það hafi gert útslagið með kaupin á B-37!!!! Og auðvitað trúi ég því :)
Þannig að nú ætlum við að finna okkur hús til leigu, en er þó til sölu og ætlum að fá það leigt, eiga kleinur með kaffinu og það verður fljótt að spyrjast út og fólk kemur og skoðar húsið (sem við þá verðum komin í) etur kleinur og kviss pang....kaupir það svo!!!! Ekki slæmt það að leigja okkur Pétri.....fyrir þá sko sem vilja selja húsin sín!!!
Nei ég er bara með þessi húsamál algjörlega á heilanum núna.....fáum við hús eða fáum við ekki hús!!! Verður það niður í bæ eða verður það hér uppfrá!!! Jæja þetta kemur allt í ljós.....einhverntímann!!!!
En hann Maggi kom og gaf okkur að smakka reyktan Lunda, en ég hef aldrei áður smakkað hann!!! Mikið djöfull er hann góður, já svo góður að ég á örugglega eftir að lenda einhverntímann á Lunda veiðum!!! En mér datt í hug lagið sem hún Solla heitin söng alltaf og kenndi mér....
"Mér þykir góður rjómi
það besta sem ég fæ.
Síðan kemur reyktur steiktur LUNDI
síðan kemur loðið skott af hundi
síðan vakna ég af værum blundi
......brókarlaus!!!!!!"
Já þetta var sko oft sungið hér áður fyrr :)

Alltaf gaman að blogga :)
Þetta er bara allt annað líf að blogga á þessa síðu :)
Ég reyndi að blogga á afmælisdegi þeirra Helga og Sifjar , þann 30. ágúst en það gekk ekki:( En ég heyrði í honum Helga mínum í síma og var ég glöð með það :) Og ég veit að allavegana þær Gugga og Ragnheiður fóru að leiðinu hennar Sifjar minnar :)
Helstu fréttir þessa dagana eru að það er gaman í vinnunni og gengur bara vel hjá mér :) Í gærkveld fóru þau Pétur og Bergljót Ásta í SIRKUS og höfðu frá mörgu að segja er þau komu heim :)
En aðal fréttin er sú að það er búið að selja B-37 !!!
Svo núna ætlum við að fara að finna okkur annað húsnæði og vonandi að það gangi vel :) Þau eru víst ekkert mörg hér sem eru til leigu!!!
Nú er það vinnan sem kallr svo ég vona bara að þið eigið góðan dag í dag :)

01 September 2008
Þessar systur eru.....
yndislegar :) Já þær Júlla Baddý og Inga Rún eru sko þær frábærustu ever :)
Búnar að búa til nýtt blogg fyrir mig þar sem ég var orðin brjáluð yfir þessu blogcentral drasli!!! Var búin að reyna að blogga í nokkra daga en ekkert virkaði :)
Vona að þið lesendur góðir verðið jafn ánægðir og ég með þessa síðu :)
Júlla Baddý og Inga Rún þúsund þakkir fyrir :) Þið eruð frábærar :)
Þá er komið að ykkur hinum að kommenta og láta mig vita hvernig ykkur líkar, kæru lesendur :)

Ný bloggsíða
Jæja elskurnar mínar,
þá er Gógó hætt á þessu blessaða blogcentral sem er að gera hana og dygga aðdáendur bloggsins hennar brjálaða og því mun Spákonan á Kambinum blogga framvegis hér á blogspot :)

skrifað 29. ágúst 2008 - Til hamingju við
Við hjónin eigum sem sagt 10 ára brúðkaups afmæli í dag
Og í dag er Pétur minn líka með tannpínu!!!
Það er nú margt sem hefur gerst hjá okkur síðan þá, já.
En við höngum saman og erum bara held ég afskaplega hamingjusöm hjón
Lengi lifi hjónabandið!!!
Subscribe to:
Posts (Atom)