20 November 2009

Föstudagurinn 20. nóvember !

Þessi föstudagur byrjaði nú miklu verr en föstudagurinn 13. !!!
Ég fór sæl og glöð í vinnuna mína, sem er bara rétt yfir götuna !
Gekk bara svona í rólegheitum....já var alls ekki að flýta mér, rek tánna í gangstéttarbrún og flýg á hausinn!!! Eða reyndar lendi á báðum HNJÁNUM og renn aðeins.....jahh mér fannst það reyndar vera eitt tvö hundrað metrar....sem hafa sennilega bara verið 2 cm eða svo!!!
Lendi með andlitið utan í grindverkinu og lek svo niður!!!
Sjáið þið þetta ekki alveg fyrir ykkur???? Svona eins og í teiknimynd!!!

Já semsagt ég smurði gangstéttina með sjálfri mér og argaði heilan helling!
Sem betur fer var þetta á þeim tíma sem flestir foreldrar voru búnir að koma með börnin sín á leikskólann....engu síður leit ég til beggja hliða til að athuga hvort nokkur hafi séð þetta......held ekki....allavegana þeir sem voru enn inn í bílunum sínum litu í aðra átt og svo sá ég nokkrar gardínur í nærliggjandi húsum blakta smá.....en held samt að engin hafi séð þetta ! Er afskaplega glöð með það ;)

Ég ligg þarna í smá stund og spyr sjálfa mig hví í veröldinni ég hafi ekki borið hendurnar fyrir mig en fékk engin svör hjá sjálfri mér !!!

Brölti á fætur og haltraði inn á leikskólann, settist þar niður og fór að væla yfir þessu!!!
Samstarfskonurnar voru nú frekar fúlar að hafa ekki verið í glugganum þegar þetta gerðist....ég er nú að vona að það sé vegna þess að þá hefðu þær getað stokkið út og hjálpað mér, frekar en að þær hefðu viljað sjá eitthvað skondið!!!!

Ég er afskaplega heppin að það sést ekki á andlitinu á mér enda má ég nú ekki við því....er víst nógu ljót samt EN er með ansi ljót sár á báðum hnjám og bólgu á öðru þeirra!!!

Þetta var semsagt föstudagurinn 20. nóvember !

2 comments:

jolly said...

Það á ekki af þer að ganga kona og svo þetta með bleitunna heima hja þér jaherna vona að heillar stjarnan fari að skina þarna fyrir norðan. Kveðja sverige

ella mágkona said...

Gógó mín þú ert alltaf svo heppinn!!!!! En ég hefði alveg viljað vera fluga á vegg!!!!
En hverni gengur að kreppa tærnar??????? Svo ert þú bara komin í norðlenska siði að baka laufabrauð og hverni gekk það?????
Ég veit ekki hvað er að gerast með mig nenni ekki neinu ... nenni ekki að fá jólin...........