12 April 2009

Páskar 2009

Já sælllll!!!!
Það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði seinast, þarf greinilega fara að taka mig á í bloggheiminum....bæði að skrifa og lesa blogg!!!

Hér gengur lífið fínt og við glöð á Króknum :)

Ég er farin að mæta á allar æfingar hjá leikfélaginu, ekki þó að leika en aðstoða leikstjórann :) Hann heitir Jón Ormar Ormsson og er hinn skemmtilegasti karl :)
Að mæta á leikæfingar er eitt það skemmtilegasta sem ég geri :)
Leikfélagið hér er að verða 120 ára og er þetta afmælissýning sett saman af leikstjóra og öðrum og taka þátt í sýningunni bæði fólk sem hefur leikið í mörg ár og fólk sem er að stíga fyrstu spor sín á sviði :)
Leikritið verður frumsýnt í Sæluvikunni :)

Frúin mætti á blak æfingu um daginn hjá Krækjunum og var það ótrúlega gaman.....ætla sko að halda þar áfram í haust :) Þær taka sér frí á sumrin :)
Ég var að sjálfsögðu blá og marin á handleggjunum eftir æfinguna....en það var þess virði :)

Georg Rúnar er búinn að koma til okkar og Helgi er líka búinn að koma :) Það var virkilega fínt að fá strákana sína heim :)

Margrét og Helgi keyrðu sl. fimmtudag vestur og í dag ætlar Margrét að keyra ein heim :)
Vona að allt gangi vel hjá henni og að heiðarnar séu snjó/hálku litlar!!!

SPÁKONAN Á KAMBINUM ÓSKAR YKKUR ÖLLUM GLEÐILEGRA PÁSKA :)

7 comments:

Julia said...

Gleðilega Páska sömuleiðis Gógó og gaman að fá fréttir af Króknum. Nú erum við hjónin að gúffa í okkur páskaeggjum uppí rúmi, eins og svo margir býst ég við.

jolly said...

Gleðilega páska bestu kveðjur til kkar var farin að halda að þú værir alveg hætt að blogga gaman að fá eitt blogg.Kveðja sverige

Kristinn Andri said...

Mikið var að þú bloggar, hélt að þú værir bara hætt því.

Gleðilega páska GóGó og fjölsk.

kv úr Norðursjónum
Kiddi

Harpa Jónsdóttir said...

Gleðilega páska til þín og þinna frú aðstoðarleikstjóri!

Anonymous said...

Gleðilegar páskakveðjur frá trygasta lesandum á Reykjavíkur-veginum. BP

Anonymous said...

Bloggi, bloggi, bloggi, bloggi, bloggi = koma svo!!!!
Strullus

Anonymous said...

profile
profile
profile
profile