22 April 2009

Þar kom að því.....bloggidíblogg :)

Þá er veturinn næstum í garð genginn og sumarið á næstu grösum :)
Já á morgun er sumardagurinn fyrsti :)
Mikið hvað ég vona að það verði meiri stilla yfir sumrinu en er í höfðinu á mér þessa dagana!!! En í kolli mínum geymi ég ekki gullið....heldur er þar allt á fleygiferð....og allt út af þessum kosningum nk. laugardag!!!
Ég veit hreinlega ekkert hvað ég ætla að kjósa!!!
Í gær (eins og flesta daga) ætlaði ég að kjósa sjálfstæðisflokkinn....í dag skila auðu og hvur veit hvað ég hugsa á morgun!!!!
Mynduð þið kæru lesendur (ef einhverjir eru eftir) geta gefið mér einhverjar hugmyndir um hvað ég á að gera??? Hvaða flokkur hentar???
Það versta samt er,að ég trúi engu né treysti neinu sem allt þetta fólk talar um....það hugsar bara hver um sinn rass!!!
Samt sem áður eru kosningarnar nk. laugardag!!!
HALLELÚJA!!!!!!

Sæluvikan byrjar nk. sunnudag og verður margt um að vera hér :)
FRÁ OKKAR FYRSTU KYNNUM verður frumsýnt sunnudaginn 26. apríl kl 20:00
2. sýning þriðjud. 28. apríl kl 20:00
3. sýning föstud. 1. maí kl 17:00
4. sýning laugard. 2. maí kl 15:00 uppselt!
5. sýning þriðjud. 5. maí kl 20:00
6. sýning miðvikud. 6. maí kl 20:00 uppselt!
7. sýning laugard. 9. maí kl 17:00
8. sýning sunnud. 10. maí kl 20:00
9. sýning þriðjud. 12. maí kl 20:00
Lokasýning miðvikud. 13. maí kl 20:00

Karlakórinn Heimir og Fjallabræður syngja fyrir okkur laugardaginn 2. maí og margt margt fleira....tel náttúrulega aðeins það upp sem á einhvern hátt snertir mig og mína :)

Hvet að sjálfsögðu alla að bregða undir sig betri fætinum og mæta í sæluna til okkar :)

Á MORGUN SUMARDAGINN FYRSTA EIGA ÞAU HEIÐURSHJÓN, TENGDAFORELDRAR MÍNIR....50 ÁRA BRÚÐKAUPS AFMÆLI :)
Vil ég því óska þeim innilega til hamingju með daginn og megi þau lengi lifa :)
Mér þykir afskaplega mikið vænt um ykkur elsku Bergljót og Björn :)

Að lokum vil ég óska ykkur gleðilegs sumars og þakka ykkur fyrir veturinn :)

9 comments:

Anonymous said...

jei! Gleðilegt sumar vinkona
Strullus

ella said...

Nei blessuð og gleilegt sumar !!!!

jolly said...

Gleðilekt sumar til ykkar allra kveðja sverige

Sigrún Sóley said...

Gleðilegt sumar og góða skemmtun á Sæluviku.
kv
Sigrún Sóley

Anonymous said...

JÁ gleðilegt sumar það er nú svo sumarlegt hér á Flateyri snjór og bilur ég er búin að fá ógeð af þessum snjó KV.GULLA

Solla Þrastar said...

Ég ætla að mæta í Skagafjörðinn með Fjallabræðrum - hlakka til að hitta þig :)

Julia said...

Gleðilegt sumar Gógó og ég sá á fésbókinni að þú ert búin að kjósa sem auðvtiað þú ein ert fær um að velja sjálf, hlusta á hjartað og sannfæringuna sem fylgir því.
Poj poj á frumsýningunni á morgun og gleðilega sæluviku.

Julia said...

Ég bíð alveg svakalega spennt eftir bloggi og myndum frá helginni.

Anonymous said...

það er nú komið að öðru bloggi það er mánuður síðan síðast!!! það er nú ekki svona mikið að gera !!!