31 August 2010

Tíminn líður hratt...........

Sumarið er búið og komið er haust !
Margar skemmtilegar ferðir hafa verið farnar til Flateyrar og nú seinast fórum við Pétur vestur í brúðkaup þeirra Róslaugar og Grétars :)
Það var sko sannarlega flott og skemmtilegt......falleg brúðhjón, flott veisla, skemmtilegur veislustjóri, góður matur, flottar ræður og góð skemmtiatriði :) Frábær hljómsveit og meiriháttar söngur og dúndur skemmtilegt veislu fólk :)

Ég er glöð að hafa þær Margrétina mína og Bergljótu Ástuna mína báðar í húsi, þ.e.a.s. að Margrét Alda kom aftur frá Danmörku í byrjun júlí eftir átta mánaða veru þar í íþróttalíðháskóla :)
Ég hef hitt strákana mína tvo, þá Helga og Georg Rúnar minn nokkrum sinnum í sumar og getað knúsað þá og er það ljúft :)

Nú tekur hið daglega líf við......vinnan og skólinn hjá BÁP-unni :)
Bergljót mín er komin í fjórða bekk og því komin í efra húsnæði skólans hér og er hún virkilega glöð með það :)
Margrét Alda vinnur vaktavinnu í sundlauginni :)
En eins og alltaf .......
þá er lífið bara yndislegt :)

1 comment:

jolly said...

Hæ hæ skvis æðislegt alltaf að lesa bloggið þitt mætti vera oftar. Gott að allt gengur vel og þið hafið það gott. Knus á ykkur kveðja heðan frá sverige.